Vörsluþjónusta
Við bjóðum fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum, sveitarfélögum og fagfjárfestum alhliða vörslu- og uppgjörsþjónustu á verðbréfum. Á einfaldan og öruggan hátt veitum við aðgang að yfir 90 mörkuðum um allan heim. Á þjónustuvef okkar fá viðskiptavinir yfirsýn yfir alla verðbréfaeign sína á einum stað.
Viðskiptavinir geta beint öllu uppgjöri og vörslu til okkar óháð því hverjir mótaðilar eru í viðskiptum. Við stundum ekki fjárfestingar fyrir eigin reikning og erum ekki bundin hagsmunum annarra aðila á markaðnum, viðskiptavinir okkar geta því hindrunarlaust stundað viðskipti við alla markaðsaðila.
Arion er eina fyrirtækið á Íslandi sem býður óháða vörsluþjónustu.