Lífeyrissjóðir

Við bjóðum lífeyrissjóðum upp á fjölbreytta þjónustu svo sem fjárhagsbókhald, réttindabókhald, vörslu og milligöngu um verðmat eigna. Auk þess sjáum við um skýrslugerð til stjórna lífeyrissjóða og opinberra aðila sem og tryggingafræðilega úttekt.

Á þjónustuvef Arion er hægt að  halda utan um eignasöfn og skrá allar breytingar á stöðu svo sem kaup, sölu, SWAP, innlausnir ofl. Arion sér um uppgjör vegna breytinga á eignasafni.

Úthýsing á verkefnum til óháðra aðila líkt og Arion dregur úr hættunni á hagsmunaárekstrum og lækkar rekstrarkostnað.

Hjá okkur starfar vel menntað, hæft og metnaðarfullt starfsfólk  sem hefur áralanga reynslu af þjónustu við lífeyrissjóði og samskiptum við opinbera eftirlitsaðila.

Fjárhagsbókhald

Reikningshald og uppgjör hjá Arion felur í sér skráningu allra hreyfinga í fjárhagsbókhald, mánaðarlegar afstemmingar eigna, bankareikninga, iðgjalda, lífeyrisgreiðslna og verðbréfa, sem og regluleg uppgjör. Uppgjöri og viðeigandi gögnum er skilað til endurskoðanda viðkomandi lífeyrissjóðs. Innri og ytri endurskoðendur hafa greiðan aðgang að öllum gögnum er varða bókhald og rekstur sjóðsins.

Réttindabókhald

Við erum með starfsstöð á Siglufirði þar sem um 30 starfsmenn vinna við réttindabókhald, skráningu samninga og innheimtu. Lífeyriskerfi Arion heldur utan um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldahreyfingar, lífeyrisgreiðslur og yfirlit sjóðfélaga.

Hefurðu áhuga á frekari upplýsingum? Hafðu samband við okkur hér

Með því að færa bókhald og uppgjör til Arion minnkar áhætta framkvæmdastjórnar Lífeyrissjóðs þar sem aðskilnaður verður annars vegar á rekstri og eignastýringu og hins vegar á  vörslu, bókhaldi og skýrslugjöf til stjórnar lífeyrissjóðs og Fjármálaeftirlits