Lagalegur fyrirvari
Vefsíða þessi er eingöngu ætluð þeim sem óska eftir upplýsingum til eigin nota um Arion vörsluþjónustu hf. (Arion). Með því að fara inn á síðuna samþykkir notandinn þá skilmála sem þar birtast hverju sinni. Þessir skilmálar geta breyst án fyrirvara. Arion áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum. Ef notandi getur ekki gengist undir þessa skilmála er hann vinsamlegast beðinn um að fara ekki inn á síðuna.
Arion vörsluþjónusta hf. er íslenskt fyrirtæki sem starfar samkvæmt íslenskum lögum.
Arion getur ekki ábyrgst að þær upplýsingar sem á vefsíðunni birtast séu fullkomnar eða nákvæmar. Arion áskilur sér rétt til að leiðrétta hvers konar mistök og misfellur sem og að breyta eða uppfæra efni síðunnar án fyrirvara. Arion er ekki ábyrgt fyrir efni annarra vefsvæða sem á einn eða annan hátt tengist þessari vefsíðu eða vísað er til á vefsíðunni. Arion getur ekki ábyrgst að skipanir og/eða tengingar sem birtast á síðunni leiði til þess sem upphaflega var ætlast og er ekki við Arion að sakast þótt svo sé.
Vissir hlutir vefsíðunnar krefjast sérstakrar skráningar og aðgangsorða. Notandi skal gæta þess að halda notendanafni og lykilorði sínu leyndu. Hvers konar misnotkun á þessum eða öðrum hlutum vefsíðunnar þar með talið, en ekki takmarkað við, óheimill aðgangur að tölvukerfi Arion, er stranglega bönnuð. Um það svæði gilda sérstakir skilmálar Arion, og vísast nánar til þeirra hvað þetta varðar.
Vakin er sérstök athygli á því að Arion ber enga ábyrgð á tjóni af völdum þess að fyrirmæli, fyrirspurnir eða önnur boð sem berast í gegnum vefsíðuna skili sér seint eða alls ekki. Ávallt geta orðið hnökrar í kerfum Arion þrátt fyrir að reynt sé eftir fremsta megni að tryggja sem besta þjónustu.
Hvers konar misnotkun á þessum eða öðrum hlutum vefsíðunnar þar með talið, en ekki takmarkað við, óheimill aðgangur að tölvukerfi Arion, er stranglega bönnuð.
Arion er eigandi og rétthafi allra þeirra auðkenna og gagna sem birt eru á heimasíðunni nema annað komi greinilega fram. Gögn þessi má ekki afrita í heild sinni eða hluta, svo sem með ljósritun, prentun, eða á annan sambærilegan hátt, án leyfis Arion nema annað sé tekið fram eða það leiðir af eðli máls. Ætíð skal geta um uppruna heimildarinnar, sé vísað í gögn á vefsíðu þessari. Notkun auðkenna Arion er óheimil án skriflegs samþykkis.
Frekari upplýsingar má nálgast í síma 528 2800.